
DANÍEL BJARNASON
Column 1:
Daníel Bjarnason lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH vorið 2000. Sama ár hóf hann nám í tónsmíðum og hljómsveitarstjórnun við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi í hvoru tveggja vorið 2003. Daníel stundaði frá 2004-2007 framhaldsnám í hljómsveitarstjórnun við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi og lauk þaðan prófi með hæstu einkunn. Daníel vinnur jöfnum höndum sem hljómsveitarstjóri og tónskáld með ýmsum listamönnum og hljómsveitum m.a. við Íslensku óperuna.
Daníel er einn af stofnendum kammersveitarinnar Ísafoldar. Hann hefur verið listrænn stjórnandi og hljómsveitarstjóri hennar frá upphafi og meðal annars stjórnað sveitinni í upptökum á báðum breiðskífum hennar. Daníel var formaður dómnefndar í samstarfsverkefni Ísafoldar, Rásar 1 og tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið í leit að nýjum tónskáldum.
Á annarri plötu Ísafoldar er að finna verkið all sounds to silence come eftir Daníel en verkið hlaut 2. verðlaun í 55th International Rostrum of Composers og var mælt sérstaklega með Daníel Bjarnasyni sem framúrskarandi tónskáldi í aldursflokkinum 30 ára og yngri. Sumarið 2009 hlaut Daníel styrk úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárn.
Column 2:
Column 3:
Daniel Bjarnason graduated from the F.I.H. Music School in 2000 with a piano diploma. He went on to study composition and orchestral conducting at the Reykjavik College of Music and graduated from there in 2003. In 2007, Daniel graduated cum laude form the Freiburg University of Music where he studied orchestral conducting with professor Scott Sandmeier. He works equally as conductor and composer with various artists and orchestras and regularly conducts at the Icelandic Opera. He is one of the founders of the Isafold Chamber Orchestra and has since been its principal conductor and artistic director.


