LEIT AÐ NÝJUM TÓNSKÁLDUM - REGLUR OG LEIÐBEININGAR

Column 1:

ALMENNT

1. Markmið verkefnisins er að gefa ungum nýjum tónskáldum tækifæri á að skrifa verk og fá það flutt af reyndum tónlistarmönnum. Þar með gefst nýjum tónskáldum einstakt tækifæri á að öðlast nýja og mikla reynslu. Hvert tónskáld mun skrifa verk fyrir blásarakvintett Nordic Chamber Soloists sem mun æfa verkin og flytja þau á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði sem fram fer dagana 22. – 27. júní 2010. Þar munu tónskáldin fá tækifæri til að vinna náið með tónlistarfólkinu undir handleiðslu reynds tónskálds, auk þess að sækja tíma og fyrirlestra viðkomandi tónskáldi.
Að hámarki þrjú tónskáld verða valin til þáttöku í verkefninu. Hvert verk má ekki vera meira en sex mínútur.

Column 2:

UMSÓKN

2. Samkeppnin er opin öllum tónskáldum óháð aldri. Tekið skal fram að samkeppnin er hugsuð fyrir tónskáld sem eru að stíga sín fyrstu skref nýjum tónskáldum).

3. Umsóknum ásamt umsóknareyðublaði þarf að skila eigi síðar en 1. mars 2010 (póststimpill gildir) á skrifstofu hátíðarinnar: Tónlistarhátíðin Við Djúpið, Leit að nýjum tónskáldum, Tónlistarskóla Ísafjarðar, Austurvegi 11, 400 Ísafirði.

4.
Í umsókninni þarf að fylgja eftirfarandi:
A) Raddskrár af 2-3 mismunandi verkum ásamt upptökum ef þær eru fyrir hendi. Merkt með dulnefni. Hvergi skal koma fram nafn tónskálds, hvorki á upptökum né raddskrám. Skilist í þríriti, bæði raddskrárnar og upptökurnar.
B) Umslag merkt dulnefninu sem inniheldur eftirfarandi:
- útfyllt umsóknareyðublað
- stutt æviágrip

5. Ef umsókn uppfyllir ekki ofantalin skilyrði verður hún ekki tekin til greina.

Column 3:

DÓMNEFND

6. Dómnefnd mun sjá um að velja tónskáld útfrá innsendum umsóknum. Ekki er hægt að áfrýja niðurstöðu dómnefndar.

7. Dómnefnd:
Daníel Bjarnason, tónskáld, formaður

Dagný Arnalds, listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið

Stefán Jón Bernharðsson, hornleikari

Þuríður Jónsdóttir, tónskáld

Ólafur Óskar Axelsson, tónskáld

8. Niðurstöður dómnefndar verða kynntar eigi síðar en 15. mars 2010.

9. Þau tónskáld sem verða fyrir valinu skuldbinda sig til að senda inn fullbúið verk fyrir blásarakvitnett (flauta, óbó, klarinett, fagott og horn) eigi síðar en 15. maí 2010. Raddskrá og pörtum skal skilað inn á tölvusettu formi (ekki handskrifuðu). Einnig skuldbinda valin tónskáld sig til að vera á Ísafirði 22.-27. júní 2010 og taka þátt í öllum hlutum hátíðarinnar sem að tónskáldinu lúta.

10. Ef valin tónskáld geta ekki uppfyllt ofantaldar skuldbindingar áskilur dómnefnd sér rétt til að endurskoða val sitt.

Column 4:

ANNAÐ

11. Kostnaður
A) Valin tónskáld fá niðurfelld gjöld fyrir hátíðina og fá ókeypis aðgang að öllum viðburðum hennar.
B) Tónskáldum verður séð fyrir gistingu meðan á hátíðinni stendur.
C) Tónskáld þurfa sjálf að standa straum af ferðakostnaði til og frá Ísafirði.

12. Kynning
Tónskáld eru beðin um að gefa kost á sér í kynningu fyrir verkefnið og hátíðina. T.d. með ljósmyndun, viðtölum við fjölmiðla o.fl. í þeim dúr eftir því sem þörf krefur.

13. Upptaka
Gerðar verða upptökur af verkum allra tónskáldanna og fá þau afrit af þessum upptökum til eigin nota.

Reykjavík febrúar 2010,
Daníel Bjarnason,
formaður dómnefndar
Greipur Gíslason,
framkv.stjóri Við Djúpið