
SAMKEPPNI FYRIR NÝ TÓNSKÁLD
Column 1:
Tónlistarhátíðin Við Djúpið, kammersveitin Ísafold og Rás 1 stóðu fyrir samkeppni meðal nýrra tónskálda í tengslum við hátíðina 2009.
Nýjum tónskáldum var boðið að senda inn umsóknir til þátttöku. 3 tónskáld voru valin af dómnefnd. Þau skrifuðu stutt hljómsveitarverk fyrir Ísafold og fengu í kjölfarið tækifæri til að vinna náið með meðlimum Ísafoldar við æfingar á hátíðinni á Ísafirði, með sérstaka áherslu á praktíska hluti sem varða framsetningu verksins og skrif fyrir einstök hljóðfæri.
Tilgangurinn var að gefa ungum tónskáldum tækifæri til að vinna mjög náið með hljómsveitum, mun nánar en undir venjulegum kringumstæðum. Það var tónlistarhátíðinni og kammersveitinni mikil ánægja að bjóða upp á þessa nýjung hér á landi.
Column 2:
TÓNSKÁLDIN VALIN
Dómnefndin valdi 3 ný tónskáld tll þátttöku í verkefninu. Fjöldi umsókna barst en 3 þeirra þóttu skara framúr. Þessi 3 tónskáld skrifuðu verk fyrir Ísafold og hittu hljómsveitina svo fyrir á Ísafirði við upphaf tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið 2009.
Tónskáldin sem urðu fyrir valinu eru:
(Veljið nöfnin til að lesa nánar um tónskáldin)
Column 3:
DÓMNEFND
Sérstök dómnefnd hefur var skipuð vegna samkeppninnar. Í henni sátu:
Daníel Bjarnason, formaður
Melkorka Ólafsdóttir
Jónas Tómason
Þuríður Jónsdóttir
Heiðursdómari:
Bent Sørensen (meira)
REGLUR OG LEIÐBEININGAR
Í samkeppninni var notast við ákveðnar reglur. Þær má finna hér. Hér er svo prentvæn útgáfa.
Column 4: